Jæja ég er nú alveg hryllileg í þessu bloggstússi en jæja hvað með það.
Jú jú það er nóg að gera í náminu enda er það bara hið besta mál. Fórum í réttir um síðustu helgi á skeiðunum og það var nú meira stuðið Gústi dróg nokkrar rollur enda áhugamaður um sveitastörf en sonurinn var meira í því að hlaupa hringinn í kringum réttina. Svo var okkur boðið í kjötsúpu á hestakránna og þar var stuð fram eftir degi og fólk í svona mis góðu ástandi og hafði stebbi bara rosa gaman af, hann fékk líka að fara svo oft á hestbak að ég held ég sé komin með annan forfallinn hestamann í familíuna. Haldið var svo heim á leið og svo var spilað Partý og co fram eftir kvöldi, ellen manstu þarna jonson og jonson eða j-o-n-s-o-n. Bara gaman. En semsagt það eru Laufskálaréttir um helgina og við ætlum auðvitað að bruna með gleðipinnunum Ellen og Guðna á morgun í villuna í skagafirði sem bíður okkar Stebbi verður bara í orlofi í bænum.
Þangað til næst...... góða helgi
» 4 hafa sagt sína skoðun
og aftur læra......
þannig er lífið hjá Huldu framundan.
Áttum ansi góða helgi í bænum hjá mömmu við Stefanó þar sem var stjanað við okkur að vana við systurnar áttum líka ansi góða spretti í búðum alla helgina og alltaf tölti Stebbi litli á eftir Gústi fór norður á miðvikudag í sínar árlegu fjallferð í skagafjörðinn og er hann endurnærður eftir skagfirska fjallaloftið þó svo sitthvað hafi nú gengið á hann fór náttulega að togna í bakinu daginn fyrir fjall þar sem hann missti bara eitt stykki hestakerru úr höndunum og reyndi svo að grípa hana en hann er nú allur að koma til, og ekki var nú líka hægt að sleppa fjallinu uss uss uss.....
jæja best að fara að lesa sænskuna
þangað til næst adios.....
» 3 hafa sagt sína skoðun
Heil og sæl til sjávar og sveita........ jæja ég er byrjuð aftur eftir þónokkuð gott bloggfrí. Ætla að stikla hérna á stóru þar sem allt þurkaðist út sem ég skrifaði í gær
Sumarfrí:
Munaðarnes 19- 26 ágúst
Saurgerlar : (
snúinn ökli (Hulda)
gat á hausinn (Gústi)
Afmæli : )
Búðadalur : )
En þrátt fyrir öll minniháttar óhöpp var þetta ansi skemmtileg vika og vil ég benda fólki á það að heimsækja Búðardal ef það hefur tækifæri til, þeir luma nú á ýmsu þar í kaupfélaginu get ég sagt ykkur, allt frá nál og tvinna uppí nýjustu tísku : ) Er búin að biðja Gústa um að fá sig fluttan þangað í svona eitt ár bara til að prufa en hann tók nú ekkert sérlega vel í þetta, ég þyrfti allavegna helst að komast í gegnum það að gramsa meira í Kaufó.
Skólinn:
Ánægð
Staðlotan alveg þolanleg
Fögin mjög áhugaverð,
Þakka fyrir að búa ekki í Reykjavík, hvað er með þessa traffík????
Jæja segjum þetta gott í bili.
Góðar stundir
» 2 hafa sagt sína skoðun
....... er fyrsti sumarfríisdagurinn okkar hjónakorna
.......tókst mér að klífa hið stórmerkilega "fjall" Kögunarhól sem ég er búin að keyra framhjá trilljón billjón sinnu og alltaf fundist það eitthvað svo rosalega stórt.... en viti menn ég var heilar 2,35 min að því can jú belív it. Maður gæti kanski farið að klifra upp Esjuna svona við tækifærið, hvað segir þú um það Unfríður Annars hef ég nú svolítið verið í fjallaklifri humm humm þar sem ég hef t.d klifið Mt.Amos í Ástralíu, geri aðrir betur, það þarf nú sammt ekkert að fylgja sögunni að ég var með tárin í augunum á leiðinni niður og að niðurleiðin tók lengri tíma en að klifra upp svo bratt var það. Svo hef ég nú líka verið svo fræg að klífa Ingólfsfjall.
semsagt fínasti dagur svosem og það stefnir í enþá betri viku.......
þangað til næst, góðar stundir.
Þoli ekki þegar strokast út hjá manni það sem maður er búin að vera að pikka inn
Allavegna þá er það útilega um helgina í góða veðrinu.
Sjáumst....
» 1 hafa sagt sína skoðun
» 0 hafa sagt sína skoðun
Oh hvað ég er að fíla það að vera bara búin að vera heima um þessa blessuðu verslunamannahelgi og þar af leiðandi losna við allt vesenið sem henni getur fylgt, og þá á ég helst við þessa blessuðu þinku. En nóg um það þetta var semsagt róleg helgi, var bara að vinna og hafa það gott. Feðgarnir höfðu það líka ósköp gott voru bara í flutningum og veseni allan laugardaginn með Bibbu og co og svo var bara tekið því létt í gær.
Núna fer svo að styttast í það að sumarfíið okkar hefjist en það er 14 ágúst og á þá að gera eitthvað skemmtilegt, ferðast og slaka sér. Nú og svo er mín bara hætta að vinna alveg þá líka enda fer skólinn að byrja þetta er búið að vera alltof stutt frí.
Jæja ætla að hætta þessu rausi....
þangað til næst........over and out.
Já heldur betur abbó því að í dag eru aðal stuðboltarnir í Hveró að fara til Oslóar á U2 tónleika og ekki við Skil ekkert í þessu fólki að hafa ekki reynt betur að fá okkur með, ellen við hefðum gefið okkur á endanum ha... en það er víst of seint. Í staðin ætlum við bara að fara til Spánarí dag réttara sagt bara í Nauthólsvíkina með nesti og nýja skó. Svo er þetta alvega að koma gott af þessari sól en náttulega er ekki leiðilegt að ég skildi fá hana akkurat í mínu 2ja vikna frí, það passar líka það á að draga úr þessari blíðu um helgina þegar ég byrja að vinna
jæja ætla að fara að undirbúa mig í sæluna adios amigos
Jæja ekki er nú hægt að kvarta yfir veðri þessa dagana, enda er búið að sóla sig óspart og sundlaugar heimsóttar. Verð að mæla með lauginni á Stokkseyri hún er alveg brill Annars gerðum við Stebbi okkur lítið fyrir og skelltum okkur í heimsókn í bæinn til ömmu Buddu og afa Stebba í gær og þvílík snilld. Það er nú ekki slæmt fyrir þau að hafa Nauthólsvíkina í bakgarðinum Nú við tókum rölt þangað með afa stebba og enduðum í 3ja tíma strandarpartýi í rosa fínu veðri. Stebbi var á endanum komin úr öllu nema brókunum og búin að vaða sjó uppá bringu ég segi nú bara hver þarf að fara á spánarstrendur þegar það er svona ansi góð strönd hérna í henni Reykjavík. Stefnan verður tekin þangað aftur það er sko pottþétt. Jæja best að fara að gera eitthvað. Þangað til næst bæjó........
Mæli með sætu kínaskónum í Hagkaup bara sætir
Já já ég veit ég er búin að vera löt að blogga núna en svona er þetta þegar það er sumar. Núna er við Rebbi litli í fríi, ég reyndar bara í vaktarfrí sem eru heilir 12 dagar ekki slæmt það, átti inni nokkrar vaktir í frí sem ég vartbúin að vinna auka þannig að það var alveg kjörið að nýta sér það núna meðan rúslan er í fríi. Hann er reyndar farin að heimta að fara á gæsló eftir hádegi svona rétt til að fá útrás.
Jæja skrifa meira næst erum að fara á gæsló.........adios amigos.......
Halló halló.....
já nú er sko orðið langt síðan að mín hefur sest niður við skriftir. Þið hafið kanski haldið að ég lægi stórslösuð uppá fjalli eftir prinsessuferðina eða að ég hefði bara hreinlega gerst prinsessa og væri flutt í ævintýraland Nei sko mín komst heim óbrotin og án nokkurra teljandi eymsla, það vottaði kanski fyrir smá rassæri en við erum ekki að tala um opin sár og blöðrur eins og tveir herramenn sem við Ellen þekkjum nokkuð vel lentu í, við nefnum engin nöfn. Þetta gekk allt eins og í sögu og ég náði að halda mér á baki alla ferðina þrátt fyrir nokkrar tilraunir til að koma mér af baki Ég verð bara að mæla með svona ferð fyrir ykkur stelpur þetta er alveg frábær upplifun og þegar ég kom heim fannst mér ég hafa klifið hæðsta fjall í heimi, sem ég reyndar líka gerði en kanski ekki hæðsta Stbbi náði nú líka aldeilis að skemmta sér þessa helgi og lenti hann í ýmsum ævintýrum, hann fékk sér veiðistöng og var að veiða alla helgina, uppí ljótapolli og svo í úlfljótsvatni, en þrátt fyrir að hafa fengið sína eigin að þá tókst honum að skemma pabba síns stöng jæja læt þetta duga í bili næst er svo hestaferð í skagafirðinum um næstu helgi..........
Sí jú leiter
Hálló halló
Já maður er bara alveg hættur að blogga Er líka að vinna mikið þessa daganna þannig að maður eyðir ekki eins miklum tíma fyrir framan tölvuna. Allt er í lukkunnar standi þessa daganna eins og vanalega og er orðin ansi mikil spenna fyrir prinsessuferðina. 17. júní var alveg meiriháttar enda var aldeilis gott veður var með fullt af fólki í mat og fínerí þannig að hérna var svaka stuð, Stebbi naut sín alveg í botn. Höfum líka tekið þá ákvörðun um að ferðast hérna heima í sumar ekkert útlandarvesen enda nóg að skoða ekki satt Semsagt allt í góðu hérna á kantinum.......
sí jú
» 5 hafa sagt sína skoðun
Já einmitt ég er í garðinum þessa stundina að reita arfa og setja niður sumarblóm, mamma sagði mér einu sinni að maður ætti ekki að setja niður sumarblóm fyrr en um 17 júní svo ég fer eftir buddu eskunni í þessu, það er sko allra veðra von fram að 17 svo maður ætti nú að vera save núna Við stebbi erum semsagt búin að liggja í beðunum í dag og skoða orma,kóngulær og járnsmiði, bara spennó
Er núna í vaktafrí þessa dagana og er bara sátt við það þó svo að letin sé nú bún að vera að hrjá mig eitthvað, en ég er nú búin að gera helling í dag Stefán er rosa ánægður á nýju deildinni og þegar að ég sótti hann í dag að þá var hann á kafi í einhverri þjóðsögu um hana Jóru tröllskessu og voru fóstrurnar rosa ánægðar með hann, hann rétt mér svo blað sem á stóð Jóruklettur og tröllskessan heitir Jóra, en þetta bað hann eina fóstruna um að skrifa fyrir sig á blað svo mamma gæti fengið díteilin þannig að við erum komin á fullt í þjóðsögurnar
jæja lítið annað að frétta...........mæli sammt með bleikum kínakóm úr Skarthúsinu er búin að vekja stormandi lukku á þeim hérna á Selfossi svo er ég líka búin að fjárfesta í rauðum og svörtum þannig að maður verður vel skógaður í sumar enda hefur það verið mitt áhugamál í gegnum tíðina er það ekki
jæja bless í bili.....
Jæja það er nú heldur betur búið að vera aksjón hjá okkur þessa helgina. Stebbi stuð fékk að gista hjá ömmu Buddu í bænum á laugardaginn og var dagurinn tekinn snemma og skellt sér í borgina á smá röllt. Pabbi okkur á bæjarins bestu og fannst stebba það bara flott, svo var stefnan tekin í Kolaportið og þar græddi stebbi enn og aftur, bubba byggir sokka og uppblásinn stubb, algjört möst að hans sögn. Svo fórum við til ömmu og þar var stefán límdur allan tímann fyrir framan sjónvarpið að horfa á carton network, þakka guði fyrir að við séum ekki með allar þessar stöðvar sem afi stebbi er búin að fá sér við værum bara föst heima fyrir framan sjónvarpið Svo var stefnan tekin heim og komu svo Ellen og Guðni og sóttu okkur og var brunað uppí sveit á hestbak Það gekk svona brilljant vel en við skulum segja að maður finnur nett til í líkamanum eftir allt þetta brokk og tölt og hvað sem þetta heitir nú allt saman þannig að nú höldum við bara áfram æfingunni fram að ferðinni, ekki verra að hafa ellen pro í þessu með mér.
Á föstudaginn hittumst við svo gellurnar úr skólanum og fengum okkur að borða á menam, það var alveg frábært maturinn var alveg geggjaður. Skunduðum svo hingað heim og kjöftuðum og drukkum bjór fram á nótt
Semsagt allt í lukkunnar standi, þangað til næst........
bæjó skræjó